Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsta stjórnmálaaflið í Hafnarfirði samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins sem birt er í dag, en hann fengi 32% atkvæða og héldi nokkurnveginn sínu frá síðustu kosningum, eins og Samfylkingin sem mælist nú með ríflega 19%.
Sjálfstæðisflokkurinn hreppti fimm bæjarfulltrúa en Samfylkingin þrjá, en mjög tæpt er að annað hvort aflið missti mann. Fjórir aðrir flokkar fengju fulltrúa í Ráðhúsi bæjarins, Framsókn, Píratar, Miðflokkurinn og VG en allir þeir flokkast mælast með rösklega 8 til 11 prósenta fylgi. Bæjarlistinn með Guðlaugu Kristjánsdóttur, núverandi forseta bæjarstjórnar í oddvitasæti næði ekki inn manni.
Hringt var í 1089 manns með lögheimili í Firðinum og náðist í 803 og var svarhlutfaall 73,7%.