Nýtt lúxushótel bandaríska ferðaþjónustufyrirtækisins Eleven Experience að Deplum í Fljótum í Skagafirði verður opnað á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta en þá kemur fyrsti hópurinn til dvalar Sex daga dvöl kostar um 2 milljónir króna á mann skv. upplýsingum Hringbrautar.
Friður, fámenni og einangrun auk ævintýraferða eru seglar í markaðssetningu fyrir nýja lúxushótelið sem sagt er engu líkt. Svítur hótelsins eru markaðssettar einkum vel stæðu fólki utan landsteinanna sem ævintýri fjarri heimsins glym.
Höfðað er til þess að dalurinn sé afskekktur og stutt í næsta sauðfjárbú. Svæði sem áður guldu fyrir einangrun virðast nú orðin sérstakt aðdráttarafl í hugum erlendra auðmanna.
Á staðnum er útisundlaug, heitir pottar, gufubað og fleiri þægindi. Þá geta gestir Depla stundað þyrluskíðamennsku, hestaferðir, veiði, sjósund og hvalaskoðun.