Settu plastið í plastpoka

Íbúar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu geta frá og með 1. mars nk. sett allt plast saman í lokuðum plastpoka beint í gráu sorptunnuna (orkutunnuna). Plastpokarnir verða flokkaðir sérstaklega frá öðru rusli og þeim komið til endurvinnslu.

Plastflokkun í plastpoka er samstarfsverkefni SORPU og fjögurra sveitarfélaga, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar.

Hér á vef SORPU er hægt að sjá nánari upplýsingar um plastverkefnið.

Í mars verður tekinn í notkun nýr búnaður í móttöku- og flokkunarstöð SORPU sem mun auðvelda flokkun á plasti til endurvinnslu.
Nýi búnaðurinnmetur eðlisþyngd plastsins og blæs pokum með flokkuðu plasti frá öðrum úrgangi. Ekki mun þurfa neina sérstaka poka undir plastið, að öðru leyti en því að þeir þurfa að vera úr plasti. Íbúar geta því t.d. notað innkaupapoka eða aðra plastpoka sem til falla á heimilum. Markmiðið er að draga úr urðun plasts og nýta betur hráefni í plastinu.