Settist á þing vorið 2009

Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata gefur ekki kost á sér til þingsetu í næstu Alþingiskosningum.Hún var fyrst kjörin á Alþingi vorið 2009.

Birgitta var formaður þingflokks Borgarahreyfingarinnar - síðar Hreyfingarinnar - árin 2009 til 2010. Hún var formaður þingflokks Hreyfingarinnar árið 2013.

Birgitta var svo formaður þingflokks Pírata 2013-2014 og aftur 2015 og síðan 2016-2017.

Birgitta segir það ekki hollt að vera of lengi á þingi - sama hvað fólk segir. Enginn er ómissandi segir Birgitta og sannarlega ekki hún.

Hennar bíði ótal verkefni sem kraftar hennar nýtist betur til en hún muni upplýsa um það nánar þegar nær dregur.

 

Nánr www.ruv.is

[email protected]