Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, hagfræðingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð, sat í starfshópnum sem skrifaði Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi. Hún segir að sértækir skattar á banka leggist að lokum á neytendur. „Eins og með flesta skatta enda þeir að lokum á neytendum. Þannig að að því marki sem bankarnir eru að keppa við lífeyrissjóði sem bera ekki slíka skatta þá auðvitað myndast ákveðnir skrýtnir hvatar í kerfinu,“ segir hún. Kjarninn greinir frá.
Í frétt Kjarnans kemur fram að á Íslandi hafi skapast samkeppni á íbúðalánamarkaði á undanförnum árum vegna þess að lífeyrissjóðir landsins hafa sótt meira inn á þann markað. Lífeyrissjóðir þurfa ekki að greiða ýmsa sértæka skatta sem bankar þurfa að greiða og hafa því getað boðið upp á mun betri kjör.
Kristrún Tinna er gestur Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hún þessa samkeppni á íbúðalánamarkaði og ýmsa aðra þætti Hvítbókarinnar, sérstaklega þá umræðu sem sprottið hefur upp um eignarhald ríkisins á bönkunum í kjölfar birtingar Hvítbókarinnar í síðasta mánuði. Hún ræðir sömuleiðis kannanir sem starfshópurinn lét gera um viðhorf almennings til fjármálakerfisins.
Brot úr þættinum er að finna hér:
Ekki marktækur munur á álagningu íbúðalána
„Við festumst stundum í því að hugsa að banki er bara banki. Sem er alls ekki raunin. Maður þarf eiginlega að brjóta niður að bankaþjónusta eru margir mismunandi þjónustuþættir. Það eru íbúðalánin, fyrirtækjalán, greiðsluþjónusta og svo framvegis. Í vinnunni skoðum við líka hvern og einn þessara flokka og hverjir eru samkeppnisaðilar á hverjum stað fyrir sig. Þá kemur mjög skýrt í ljós að þar sem samkeppnin er mikil er álagningin minni. Eins og til dæmis á íbúðalánum, þá er ekki marktækur munur á álagningu bankanna á Íslandi og á Norðurlöndunum,“ segir Kristrún Tinna.
Nánar er rætt við Kristrúnu Tinnu í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.