Dómamálaráðherra minnir á að ráðíst var í aðgerðir í gær eftir greiningarvinnu embættis Ríkislögreglustjóra. Eftir hryðjuverk í grannríkjum Íslands fór sjálfkrafa í gang ferli hjá Ríkislögreglustjóra þar sem metið hvort og þá til hverskonar viðbúnaðar skal grípa.
Sérsveitarmenn stóður því viðbragðsvakt í gær á meðan Litahlaupið eða \"Color run\" var þreytt. Nokkur viðbúnaður verður svo í dag vegna landsleiks Íslands og Króatíu. Rétt er að minna á að ekki er venja að gefa út tilkynningar um vinnulag lögreglumanna þegar almannaöryggi og innra öryggi lýðveldisins eru í húfi.
Sérsveitin er deild innan löggæslu- og öryggissviðs embættis Ríkislögreglustjóra. Sérsveitin sinnir fjölbreyttum verkenfnum á sviði lögggæslumála og öryggismála. Einkum sinnir sveitin mikilvægu hlutverki varðandi hryðjuverkavarnir.
rtá