Sérstök dagskrá vegna neyðarástands

Sérstakur þáttur vegna neyðarástandsins sem komið er upp í stjórnmálum landsins verður á dagskrá klukkan 21 á Hringbraut í kvöld.

Nokkrir þingmenn, rithöfundur sagnfræðingur, fyrrum formaður Samtaka verslunar og þjónustu og fleiri verða gestir Hringbrautar í fyrstu beinu útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar frá upphafi. Þá verður rætt við almenning á Austurvelli en talið er að mótmælendur hafi verið vel á annan tug þúsunda. Kona sem Hringbraut ræðir við lýsir því að hún hafi aldrei orðið eins reið og í gær og útskýrir hvers vegna.

Umsjónarmenn eru Ólafur Arnarson, Ólafur Ísleifsson og Björn Þorláksson.