Sérstök áhersla á hækkun lægstu launa

Stefnt er að undir­ritun kjara­samnings milli VR, Eflingar, VLFA, VLFG, LÍV og Framsýnar auk sam­flots­fé­laga innan Starfs­greina­sam­bandsins, og Samtaka atvinnulífins í húsakynnum ríkis­sátta­semjara í dag. Áætlað var að skrifa undir samninginn klukkan 15:00 en undirritunin hefur dregist. Í samningnum er lögð sérstök áhersla á hækkun lægstu launa. Fréttablaðið greinir frá.

Kjara­samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 til 1. nóvember 2022 og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er þar lögð sérstök á­hersla á hækkun lægstu launa. Þannig er áætlað að lægstu laun hækki um tæpar 90 þúsund krónur á mánuði á samnings­tímanum. Al­menn hækkun launþega á sama tíma myndu nema tæpum 70 þúsund króna á mánuði.

Í samningnum er að finna sér­stakt á­kvæði sem tryggja á launa­fólki hlut í aukningu lands­fram­leiðslu. Aukist hag­vöxtur á milli ára kæmi þannig til launaauki. Einnig er stigið stórt skref varðandi styttingu vinnu­vikunnar og gert ráð fyrir að hún verði að jafnaði 36 klukkustundir, sem yrði þó útfærsluatriði á hverjum vinnustað.

Samnings­aðilar gera einnig ráð fyrir því að með þessum kjara­samningi og að­komu stjórn­valda geti skapast skil­yrði fyrir vaxta­lækkun Seðla­bankans. Fyrr í dag greindi Kjarninn frá því að ríkisstjórnin verðleggi framlag sitt við það sem hún kallar „lífskjarasamninga“ á 100 milljarða króna á samningstímanum. Þetta framlag ríkisstjórnarinnar sé til þess fallið að greiða fyrir gerð þess kjarasamnings sem nú standa vonir til að verði undirritaður hvað á hverju.

Þrátt fyrir að ekki sé búið að kynna formlega hvað leynist í kjarasamningnum er talið að eftirfarandi atriði kunni einnig að vera hluti af honum, líkt og Vísir.is greinir frá:

  • Engin verðtryggð lán frá árinu 2020 til lengri tíma en 25 ára
  • Lágmarkslengd verðtryggðra lána verði 10 ár
  • Húsnæðisliðurinn tekinn úr vísitölu verðtryggðra lána
  • Ákvæði í kjarasamningnum að segja honum upp lækki Seðlabankinn ekki vexti
  • Níu þúsund króna skattalækkun til lágtekjufólks