Sérstakur saksóknari á hringbraut

Lögfræðiþátturinn Lög og réttur, sem er á dagskrá Hringbrautar á miðvikudagskvöldum klukkan 20:45 spyr að þessu sinni hvort búið sé að gera upp hrunið, en aðalgestur þáttarins er Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.

Ólafur Þór fer yfir málaskrá hrunsins í þættinum og svarar því til hvernig gengið hefur að taka á efnahagsbrotamálum í tengslum við hrunið, en óhætt er að segja að þar hafi mikið gengið á.

Ólafur Þór verður gestur þáttarins í kvöld og einnig í þættinum í næstu viku, enda margs að spyrja í þessum efnum og svörin merkileg.