Sérstaklega sýnileg löggæsla

Álíka margri lögreglumenn sinntu öryggisgæslu og eftirliti á Austurvelli í gær og undanfarin ár. Jafvel aðeins færri en á síðasta ári.

Fyrirbyggjandi aðgerðir á stöðum þar sem fólk kom saman til að halda daginn hátíðlegan voru til þess að draga úr hverskonar ógn við öryggi fólks. Farartálmar voru settir upp víðsvegar til að hindra og fyrirbyggja akandi umferð um hátíðarsvæði meðan skipulögð dagskrá fór fram.

Lögregla um land allt mun auka viðbúnað á fjölmennum samkomum og hátíðum í sumar. Áformað er að vera með mjög sýnilega löggæslu á öllum samkomum og hátíðum í sumar.

Það felst ákveðin eðlisbreyting í því fyrir Íslendinga að lögreglumenn beri skotvopn á almannfæri við skyldustörf sín.   

rtá