Það verða heldur betur skemmtilegar bílasögur sagðar í bíladelluþættinum Kíkt í skúrinn í kvöld, meðal annars sagan af bílnum sem eigandinn varð að selja ungur maður en eignaðist svo aftur á gamals aldri.
Í þættinum kíkir Jói í skúrinn hjá Enoki Sveinbjörnssyni sem á Corvettu c3 árgerð 1978 sem hann flutti inn til landsins 2005 og kláraði að gera upp á aðeins tveimur árum. Þessi Corvetta er afar vel gerður bíll sem hann vann með sonum sínum og því um einskonar feðgaverkefni að ræða. Hann var tekinn í gegn frá framstuðara og að afturstuðara og allt þar á milli - og allt gert af mikilli fagmennsku og natni, meira að segja eru mælar handmálaðir með nafni eigandans. Hér var því ekki neitt til sparað heldur gert glæsilega og alla leið svo um munar.
Í þættinum kíkir Jói líka til Þórðar Þorteinssonar sem er með Desoto árgerð 1947 í skúrnum, mjög merkilegan bíl. Þessi öðlingur keypti bílinn aðeins 17 ára gamall en hann er í dag rúmlega sjötugur. Hann seldi bílinn á sínum tíma til að stofna til heimilis og fjölskyldu en fylgdist með bílnum alla tíð. Þessi bíl fór á milli manna nánast endalaust og allir ætluða að gera hann upp. En svo endaði bíllinn hjá honum aftur óuppgerður 2004. Hann kom honum saman og fór fyrsta rúntinn vorið 2008. Þetta er flott saga af manni og bíl.
Og loks þetta í þættinum: Tími vetradekkjanna er kominn. Jóhann Kári hjá Max 1/Vélalandi kynnir áhorfendum það helsta varðandi vetrardekk og hvað þarf að hugsa um þegar vetrardekk eru valin undir bílinn.
Kíkt í skúrinn er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 í kvöld og er þátturinn endursýndur strax klukkan 22:30.