Sérstakar áhyggjur af skagafirði

Byggð í Skagafirði kann að lenda í sérstakri hættu í kvöld vegna austan fárviðris fram undan eftir því sem fram kom í samtali fréttamanns Rúv við veðurfræðing á Veðurstofu í hádegisfréttum.

Veðurfræðingurinn sagði að óveður úr þessari átt í grennd við  fjöll gætu orðið til þess að aðstæður í Skagafirði virkuðu eins og „magnari“ í kvöld.

Mörg fleiri svæði eru nefnd þar sem íbúar ættu að fara sérlega varlega s.s. Borgarfjörður – en Veðurstofan nefnir Skagafjörð sérstaklega sem varasamt svæði. Þá getur víða skapast snjóflóðahætta.

Mögulegt er að óvissuástandinu sem Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir verði breytt í hættuástand þegar líður á daginn.

Hringveginum verður meira og minna lokað senn en þegar hefur köflum hans verið lokað.