Sérstaka veiðigjaldið var lögmætt

Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfu Vinnslustöðvarinnar sem vildi 500 milljónir króna frá ríkinu vegna breytinga á veiðigjöldum.

Ríkisútvarpið sagði frá þessu í hádegisfréttum.

Tekist var á um lögmæti þess að leggja sértsakrt gjald á sjávarútvegsfyrirtæki. Héraðsdómur hafnar málflutningi Vinnslustöðvarinnar sem vildi fá gjaldið endurgreitt fyrir tímabilið 2012-2013 en gjaldinu var komið á í tíð fyrri ríkisstjórnar, stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Þá voru innheimtir 8 milljarðar króna í sérstakt veiðigjald.

Forráðamenn Vinnslustöðvar töldu gjaldið ekki standast stjórnarskrá en Héraðsdómur Reykjavíkur er því afdráttarlaust ósammála.