Sérstaða eða bara duttlungar

Framsóknarflokkurinn var fyrir nokkru í farabroddi fyrir opinni umræðu um Evrópumálin. 

Og freistuðu Framsóknamenn þess þá að stuðla að opinni umræðu og fordómalausum skoðanskiptum um þær leiðir sem eru í samstarfi Íslands og Evrópusambandins.  

Þáverandi utanríkisráðherra og Framsóknarkona Valgerður Sverrisdóttir bað Íslendinga um að festast ekki í  \"...gettói hugarfarsins.\" 

Valgerður sagði þetta:

\"Við megum til að mynda ekki láta heimatilbúna aðildarskilmála ráða ferðinni.  Við værum enn í Kaupmannahöfn að ræða um sambandsslit ef við hefðum nálgast hlutina á þann hátt.  Minnimáttakennd er ekki stíll okkar Íslendinga.\"  

Þess vegna má spyrja hvað formaður og varformaður Framsóknarflokksins vita um ógagn af því að taka virkan þátt í Evrópusamvinnunni.

Og hafa meira um örlög okkar að segja.

[email protected]