Í Bandaríkjunum verður nú hægt að sérhæfa sig í fíknlækningum, nýrri sérgrein innan læknisfræðinnar sem kallar á skilvirkari inngrip í meðferð einstaklinga sem eiga við fíknsjúkdóm að stríða. Þetta kemur fram vefsíðu SÁÁ.
Þar segir að áfengis- og vímuefnaneysla sé afar útbreidd og þungvægur þáttur í heilsuleysi þeirra sem þjást af fíknsjúkdómum. Slíkir einstaklingar eifi oft í tíðum samskiptum við heilbrigðiskerfið og slíkt sé kostnaðarsamt.
Mikil þörf sé þörf á rannsóknum um notkun lyfja við hinum ýmsum fínsjúkdómum, og að enn sé margt ógert til að tryggja enn árangursríkari leiðir til inngrips hjá sjúklingum sem eru í brýnni þörf fyrir slíkt.