Sérfræðingar frá öse heimsækja alþingi vegna endurskoðunar siðareglna alþingismanna

Tveir sérfræðingar frá Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu ÖSE heimsækja Alþingi í febrúar í tengslum við vinnu sem nú stendur yfir við endurskoðun siðareglna fyrir alþingismenn.

Drög að breyttum siðareglum fóru til umsagnar siðanefndar Alþingis og Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í nóvember síðastliðnum. Í kjölfar þess sendi ÖSE bréf í desember þar sem vakin var athygli á reynslu og sérþekkingu stofnunarinnar á málum sem varða siðferðileg viðmið fyrir þjóðkjörna fulltrúa. Ýmiss konar aðstoð var boðin, m.a. að fá til Íslands sérfræðinga ÖSE til að ræða við þingmenn og skrifstofu Alþingis um endurskoðunina á siðareglum fyrir alþingismenn.

Úr varð að tveir sérfræðingar, Marcin Walecki, forstöðumaður skrifstofu lýðræðisvæðingar, og Jacopo Leone, sérfræðingur á sviði lýðræðisstjórnunar, koma til landsins og heimsækja þingið í febrúar. Þeir munu hitta og eiga fundi meðal annars með forseta Alþingis, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, forsætisnefnd og lagaskrifstofu þingsins, formönnum þingflokka og ráðgefandi siðanefnd Alþingis.