Séra ólafur fær vangreidd laun: fimm konur sökuðu hann um kynferðislega áreitni

Séra Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur í Grensáskirkju, var sakaður um kynferðislega áreitni af fimm konum og kærðu þær hann til fagráðs þjóðkirkjunnar. Séra Ólafur sakaði konurnar fimm á móti um samantekin ráð. Þá velti lögfræðingur hans því fyrir sér hvort ein kæran væri „runnin undan rifjum biskups, prófasts eða öðrum vinkonum í kirkjunni sem vildu jafnvel fella séra Ólaf,“ líkt og sagði í frétt Fréttablaðsins á síðasta ári. Ólafur var sagður hafa sleikt kinnar kvenna, haldið þeim á lofti á meðan hann faðmaði þær og gefið fótanudd án samþykkis.

Í fréttinni kom fram að Ólafur hefði áfrýjað þeim tveimur málum, þar sem sem hann var fundinn sekur um siðferðisbrot í skilningi þjóðkirkjulaga. Haft var eftir Einari Gauti Steingrímssyni, lögmanni Ólafs, að þar sem úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið um kynferðislegt ofbeldi að ræða, heldur einungis siðferðisbrot, væru engin rök fyrir því að framlengja leyfið sem biskup skikkaði klerkinn í vegna málsins.

Fimm konur, sem allar tengjast kirkjunni nánum böndum, kærðu Ólaf og sögðust bera fullt traust til úrskurðarnefndar kirkjunnar til að komast að niðurstöðu í málinu. Konurnar sem um ræðir eru Anna Sigríður Helgadóttir, söngkona og fyrrverandi tónlistarstjóri Fríkirkjunnar í Reykjavík, Elín Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Útfararstofu kirkjugarðanna, Guðbjörg Ingólfsdóttir, starfsmaður Kirkjuhúss, séra Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra með starfsstöð í Grensáskirkju og Rósa Kristjánsdóttir, djákni og deildarstjóri sálgæslu á Landspítala. Gagnrýndu konurnar fimm lögmann Ólafs og vildu meina að hann gerði lítið úr málinu.

Niðurstaða liggur nú loks fyrir. Biskupsstofa hefur ákveðið að greiða séra Ólafi van­greidd laun eins og aldrei hefði til tíma­bund­ins brottrekstr­ar komið. Að sögn lög­manns Ólafs er hann tek­inn við embætti á ný. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu.

Nefnd á vegum fjármálaráðuneytisins um tímabundnar lausnir ríkisstarfsmanna frá störfum komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið rétt staðið að málum. Þá segir nefndin að engin sjálfstæð rannsókn hafi farið fram af hálfu biskups á ásökununum. Þá skal tekið fram að málið fór á sín­um tíma fyr­ir bæði úr­sk­urðar- og áfrýj­un­ar­nefnd kirkj­unn­ar og í báðum þeim nefnd­um var tíma­bundna lausn­in frá starfi dæmd rétt­mæt.