Vilhjálmur Bjarnason, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi, var óvæntur gestur á tískusíðu Fréttablaðsins í dag. Var það vegna þess að auglýsingin var staðsett þannig í blaðinu.
Vilhjálmur sækist eftir öðru eða þriðja sæti á lista flokksins í Kraganum.
Séra Hjálmar Jónsson, yrkir eftirfarandi um málið:
Athyglina ekki missti,
allt er Villa í hag.
Fallegur er framboðslisti
Fréttablaðsins í dag.