Séra halldór í stjórn íslandspósts

Fjármálaráðherra hefur skipað nýja stjórn yfir ríkisfyrirtækið Íslandspóst.

Bjarni Jónsson (Bjarnasonar formanns Heimsýnar) er nýr formaður.

Aðrir í stjórn eru Svanhildur Hólm Valsdóttir aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, Ólöf Sveinsdóttir og Thomas Möller verkfræðingur.

Fimmti stjórnarmaðurinn vekur óneitanlega athygli. Þar er um að ræða séra Halldór Gunnarsson fyrrum sóknarprest í Holti undir Eyjafjöllum. Hann leiddi lista Flokks fólksins í NAustur kjördæmi en náði ekki kjöri til Alþingis. Halldór er 77 ára.