Séra bjarni áreittur af konu sem barn

Séra Bjarni Karlsson fyrrverandi sóknarprestur í Langholtsskirkju lýusti því i þættinum Fólk með Sirrý í gærkvöld hvernig hann "gróf niður sára minningu" eftir að hafa verið kynferðislega áreittur af konu sem barn. 

 

Bjarni Karlsson starfaði sem sóknarprestur í aldarfjórðung og aðstoðaði fólk sem glímdi við ýmsa erfiðleika.  Þegar hann var 35 ára gamall áttaði hann sig á því að allt frá barnæsku hafði hann grafið niður, múrað inni mjög erfiða lífsreynslu. Bjarni lýsir því af hispursleysi í þættinum hvernig kona hafi  gengið yfir hans mörk kynferðislega þegar hann var á unga aldri. "Var þetta kynferðisleg misnotkun?" spurði Sirrý hann í þættinum og það stóð ekki á svari: "Nei, þetta var kynferðisleg áreitni, tilraun til tælingar" sagði Bjarni og bætti við: "Þegar fullorðinn reynir að tæla barn áður en það er orðið kynþroska skaðast grunnhæfni manneskjunnar til að elska og treysta."

 

Hanna Björk Vilhálmsdóttir kennari í kynjafræði tók líka þátt í umræðunni og þau lögðu bæði áherslu á að slík mál væru algeng og því mikilvægt að ,,skrímslavæða" ekki gerendur í slíkum brotum. Hanna Björg benti á að það getur meðal annars dregið úr líkum á að barni verði trúað ef það segir frá. Oft eru gerendur nákomnir barninu en ekki ókunnug skrímsli í skúmaskotum. Bjarni bætti því við í þættinum að hann teldi það ekki rétt að kalla tælingu og kynferðislega áreitni ,,sálarmorð" eins og oft heyrist í umræðunni. Það sé ekki raunin. 

 

Ungt fólk úr Borgarholtsskóla tók einnig þátt í umræðunni um siðfræði kynlífs. Þau Elías Arnar Hjálmarsson, Elmar Ægir Sigurðsson og Annie Marin Guðmundsdóttir lögðu áherslu á að samfélagið heldur að okkur hugmyndum um að karlinn sé konunni æðri. ,,Það er komið inn í undirmeðvitundina hjá okkur" sagði Elías Arnar. Og þau vara við hugmyndafræði kynlífsiðnaðarins. ,,Það tapa allir á kláminu" sagði unga fólkið. Karlmenn fá ranghugmyndir og frammistöðukvíða. Annie Marin sagði frá því að sumar stúlkur horfa á klám til að læra af því en fá mjög villandi mynd. Það þarf að bæta mennsku og tilfinningum inn í kynlífsumræðu, sögðu þau. 

 

Fólk með Sirrý er frumsýnt klukkan 20.00 á þriðjudagskvöldum á Hringbraut, en þáttinn má nálgast í heild sinni á hringbraut.is svo og stuttar klippur úr honum.