Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðhera og formaður Samfylkingarinnar gerir því skóna í nýrri færslu sinni á Facebook að Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri sé í raun og sann pírati. Hann hafi þvertekið fyrir það á síðustu dögum að hann væri ha ndgenginn Bjratri framtíð, Besti flokkurinn væri aflagður og hefði ekki sem slíkur runnið saman við Bjarta framtíð. Össur túlkar þetta á sinn veg: "Þetta getur hins vegar tæpast þýtt annað en Jón Gnarr sé á leiðinni þangað sem hann hefur alltaf átt heima, til Píratanna," skrifar Össur og bætir við: "Þá vaknar skemmtilegur möguleiki. Ég tel litlar og dvínandi líkur á að núverandi stjórn nái aftur meirihluta. Sigmundur Davíð sér eiginlega um það einsog svo margt annað. Gunnari Braga hefur sömuleiðis tekist að sameina stjórnarandstöðuna, og mér finnst líklegt að hún nái meirihluta. Þó vísast haldi Píratar ekki núverandi styrk þegar kemur til kosninga er allt eins líklegt að þeir verði stærstir stjórnarandstöðuflokkanna. Þá mun forsætisráðherrann koma úr röðum Pírata."
Og hinn pólitíski herkænskufræðingur botnar skrif sín býsna skýrum hætti: "Í dag á því enginn maður jafn mikla möguleika á að verða næsti forsætisráðherra og Jón Gnarr – svo fremi hann kæri sig um."