Sendu 3500 ullarsokkapör til Úkraínu

Níu tonn af vetrarfatnaði frá Íslandi voru um borð í kanadískri herflutningavél sem flaug frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Úkraínu í dag.

Um að ræða útbúnað fyrir varnarsveitir Úkraínu og almenning sem er annars vegar afrakstur sjálfboðavinnu þúsunda Íslendinga og hins vegar kaup utanríkisráðuneytisins á margvíslegum vetrarbúnaði.

Meðal þess sem var um borð voru 3500 ullarsokkar.

Í tilkynningu frá ríkisstjórninni kemur fram að raunvirði varningsins um borð hafi verið um 150 milljónir.

„Þungur hrammur vetrarins færist nú hægt og bítandi yfir Úkraínu og eins og við höfum séð beita rússnesku innrásaröflin honum sem vopni í yfirstandandi átökum. Sem herlaus þjóð getur Ísland eðli máls samkvæmt ekki lagt úkraínskum varnarsveitum til hergögn en við getum hins vegar sent þeim hlýjan skjólfatnað, sem er ekki síður nauðsynlegur á ísköldum vígvellinum en hefðbundin vopn,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Starfsfólk Landhelgisgæslunnar pakkaði varningnum um helgina og setti á bretti sem var síðan staflað um borð kanadísku herflutningavélina á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Auk utanríkisráðherra fylgdust fulltrúar Sendum hlýju og hannyrðahittingsins og Jeannette Menzies, sendiherra Kanada á Íslandi með því sem fram fór.

„Það er rík ástæða til að þakka öllum þeim sem eiga þátt í að við sendum alla þessa hlýju til Úkraínu í dag. Þar vil ég nefna fyrirtækin sem við höfum átt í góðu samstarfi við, Landhelgisgæsluna sem hefur annast umsýslu og kanadíska flugherinn sem flytur varninginn á áfangastað. Og síðast en ekki síst á hannyrða- og prjónafólk á Íslandi sérstakar þakkir skildar fyrir að sýna sinn hlýhug í verki með svo áþreifanlegum hætti,“ segir Þórdís Kolbrún.