Kúbverski fáninn dreginn að húni í bandaríkjunum

Stórt skref var stigið í samskiptum Bandaríkjanna og Kúbu í gær þegar sendiráð voru formlega opnuð í höfuðborgum landanna tveggja. Fáni Kúbumanna var í kjölfarið dreginn að húni í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, þar sem fánar þeirra ríkja sem reka sendiráð í landinu standa. 

Opnun sendiráðana þykir marka tímamót í samskiptum ríkjanna. Fyrr á árinu var komist að samkomulagi um að taka upp formlegt stjórnmálasamband að nýju, en bandarísk stjórnvöld slitu stjórnmálasambandi við Kúbu og lokuðu sendiráði sínu í Havana í byrjun árs 1961.

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur beitt sér fyrir bættum samskiptum ríkjanna í forsetatíð sinni og þykja tímamótin mikill sigur fyrir forsetann.  

Bruni Rodriquez utanríkisráðherra Kúbu og John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna áttu saman fund í gær í tilefni af opnun sendiráðanna. Rodriquez dró fána Kúbumanna að hún og samkvæmt heimildum kölluðu viðstaddir „lifi Raul!“ og „Fidel! Fidel!“ en bræðurnir Fidel og Raul Castro hafa stjórnað Kúbu frá árinu 1959.