Sendir „fyrir­­lit­­legri“ sirrý tóninn fyrir bak­þanka­­skrif

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, svarar Sirrý Hallgrímsdóttur fullum hálsi vegna bakþanka þeirrar síðarnefndu í Fréttablaðinu í dag sem bera heitið „Bylting étur“. Þar skrifar Sirrý að ótrúlegt sé að fylgjast með verkalýðshreyfingunni þessa dagana. Munnsöfnuðurinn sé þannig að „venjulegu fólki svelgist á, ítrekað“. Hreyfingin grípi til fúkyrða þegar forystufólki hennar sé bent á að krónutöluhækkanir leiði af sér verðbólgu, hækkun læna og kaupmáttarrýrnun.

Þá segir hún að Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, sé „andlegur leiðtogi“ hinnar nýju verkalýðshreyfingar. „Nú er Gunnar Smári búinn að finna nýjan sjóð, verkalýðsfélagið Efling situr á 12 milljörðum sem nýta má til ýmissa verka. Það þurfti bara að senda gjaldkerann í veikindaleyfi, hún virtist ekki skilja fínni blæbrigði byltingarinnar,“ skrifar Sirrý.

Sólveig Anna svarar bakþönkum Sirrýjar í Facebook-færslu sem hún birti í morgun þar sem hún vandar henni ekki kveðjurnar.

 

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/sirr-solveig