Englendingurinn Michael Mann tekur við stöðu sendiherra Evrópusambandsins (ESB) á Íslandi. Hann hefur áralanga reynslu af Evrópumálum og átti farsælan feril sem blaðamaður áður en hann hóf störf hjá ESB.
Michael Mann vann fyrir Neil Kinnock fyrrum leiðtoga Verkamannaflokksins breska og var talsmaður framkvæmdastjórnar ESB um utanríkismál um lang skeið.
Hann er sagður agaður embættismaður sem vinnur skipulega að því að kynna Evrópumál og kunni að skýra og kynna snúin ESB mál sem vefjast kunna fyrir fólki. Hann er sagður rökfastur og sé óragur við að gæta hagsmuna ESB af staðfestu en með yfirveguðum hætti.
rtá