Maní, sautján ára transdrengur sem á að vísa úr landi á morgun, mótmælti fyrirhugaðri brottvísun fyrir framan Alþingishúsið í gær. Hann stóð þar með skilti sem á stóð „Ég er líka barn Katrín“. Mótmæli fyrir Maní hefjast fyrir utan dómsmálaráðuneytið klukkan 15 í dag.
Maní kom til Íslands með foreldrum sínum þann 5. mars 2019. Hann er nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem hann hefur fest rætur, eignast vini og tengst samfélaginu.
„Við sem stöndum að viðburðinum erum mæður trans barna. Við hvetjum ykkur öll til að mæta við Dómsmálaráðuneytið, Sölvhólsgötu 7, standa með Shadidi fjölskyldunni og að tryggja að Mani fái réttláta málsmeðferð. Einnig hvetjum við fólk til að skrifa undir þessa áskorun,“ segir í hópnum. Hér má nálgast undirskriftalistann en tæplega 6.500 hafa skrifað undir.