Hjónin Lilja Ástvaldsóttir og Högni Valsson misstu son sinn, Jón Ívar, þegar hann dó vöggudauða þriggja mánaða gamall. Drengurinn var fyrsta barn ungu hjónanna og þegar Lilja koma að honumí vagninum var hann látinn.
Þau hjónin komu fram í þættinum ,,Fólk með Sirrý" nú 40 árum eftir vöggudauðann til að sýna fólki fram á að það er alltaf von og lífið heldur áfram, líka eftir óbærilegan missi. Í þættinum kom fram hve mikil breyting hefur orðið í samfélaginu á þessum árum sem liðin eru. Bæði hvað varðar ráð til foreldra um ummönnun ungbarna og framkomu við syrgjandi foreldra.
"Okkur var bara vísað inn í herbergi á spítalanum þegar búið var að úrskurða son okkar látinn. Þar sátum við tvö ein, horfðum hvort á annað og grétum. Enginn kom og aðstoðaði okkur í sorginni. Við vorum send heim með róandi pillur í umslagi."
Þau þurftu sjálf að virkja sitt tengslanet og láta foreldra sína vita af láti litla drengsins. Bæði Vigfús Albertsson, sjúkrahúsprestur á Landspítalanum, og Hrólfur Brynjarsson, sérfræðingur í barnalækningum og nýburalækningum á vökudeild Barnaspítala Hringsins, sögðu að nú væru aðrir tímar og fólk fengi mun meiri aðstoð í sorgarferlinu. ,,Fólk er aldrei skilið eftir eitt í slíkri sorg í dag. Fagfólk aðstoðar og sér um að virkja tengslanet syrgjandi fólks," sagði Vigfús sjúkrahúsprestur. Hann kallaði slíka sorg ,,sjálfræðissviptingu", fólki er ekki sjálfrátt í svo erfiðum aðstæðum og verður að fá hjálp fagaðila. Hann minnti á að sorgarúrvinnsla tekur langan tíma. ,,Fólk er óþolinmótt í nútímanum. Það eru allskyns kúrar og skyndiátök í gangi en sorgin lýtur ekki slíkum lögmálum," sagði sjúkrahúspresturinn.
Lilja sagði frá því að þegar hún eignaðist Jón Ívar var mæðrum kennt á fæðingardeildinni að láta nýbura sofa á maganum. Þetta er ekki ráðlagt í dag. Hrólfur Brynjarsson læknir segir að búið sé að sýna fram á með rannsóknum að betra er að láta ungbörn sofa á bakinu. Forðast ber að dúða of mikið, forðast skal reykingar á meðgöngu og eftir fæðingu, best er að hafa börnin á brjósti sé þess kostur, ráðlagt er að láta þau sofna með snuð og láta þau sofa í sér rúmi í herbergi foreldranna.
Lilja og Högni glímdu við mikla sorg og vanlíðan í mörg ár. Þau unnu í sínu hjónabandi, fundu frið í trúarupplifun og eiga í dag gott líf, þrjú börn og barnabörn. Þau vildu með því að segja Sirrý sögu sína í þættinum sýna fólki fram á að það er alltaf von og lífið heldur áfram, líka eftir óbærilegan missi.
Sjá má þáttinn í heild sinni hér á Hringbraut.is