„Kynferðisleg áreitni er með öllu ólíðandi, óháð því hver birtingarmynd hennar er, hvar hún á sér stað og hver það er sem beitir henni. Að flokkur jafnaðarmanna, með forystukonur metoo-byltingarinnar innanborðs, flokkur sem segist berjast gegn kynbundnu ofbeldi, flokkur mannréttinda og femínskrar hugmyndafræði, skuli vera með fulltrúa á þingi sem hefur gerst sekur um kynferðislega áreitni er með öllu óásættanlegt og það er siðlaust.“
Þetta segir Sema Erla Serdar í pistli á Facebook. Hún er ósátt við að Ágúst Ólafur Ágústsson hafi ákveðið að snúa aftur og taka sæti á þingi. Ágúst Ólafur sem er þingmaður Samfylkingarinnar, óskaði eftir veikindaleyfi í vetur og fór í áfengismeðferð. Það gerði hann eftir að hafa áreitt á grófan hátt blaðamann Kjarnans kynferðislega. Þá fékk hann áminningu frá trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar. Þá hafa Ungir jafnaðarmenn einnig fordæmt hegðun Ágústar og vilja að hann segi af sér.
Sema Erla segir að gert sé lítið úr þeim árangri sem hafi náðst í baráttunni gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í stjórnmálum og það gerir lítið úr raunum þolenda slíks ofbeldis með því að Ágúst setjist aftur á þing. Sema Erla segir:
„Flokkurinn getur ekki furðað sig á því að konur endist illa í ábyrgðarstöðum innan flokksins og á sama tíma boðið ítrekað upp á starfsumhverfi eins og þetta.“
„Ég hef verið í Samfylkingunni í meira en áratug og gegnt hinum ýmsu ábyrgðarstöðum fyrir flokkinn, meðal annars stöðu formanns framkvæmdastjórnar flokksins. Mér hefur oft misboðið meðvirknin og vinnubrögðin innan flokksins en sjaldan jafn mikið og nú. Að taka ekki skýra afstöðu gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í öllum tilvikum er hræsni,“ segir Sema Erla og bætir hún við að hún sé viss um að heyrast myndi hærra í flokksfélögum hennar ef þingmaður annars flokks hefði gerðist sekur um kynferðislega áreitni og sæti sem fastast á þingi. Sema Erla segir:
„Hvað Ágúst Ólaf varðar getur hann beðið um annað tækifæri í prófkjöri flokksins og/eða hjá kjósendum í næstu kosningum. Samfélagsmiðlar duga bara ekki til.“ Þá bætir Sema Erla við að lokum:
„Þetta er kannski ekki vinsælasta skoðun dagsins hjá félögum mínum í Samfylkingunni en ef við ætlum að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og ofbeldi á vettvangi stjórnmálanna og í samfélaginu öllu þurfum við að gera það af heilindum og hugrekki en ekki eftir hentugleika.“