Sema Erla Serdar, stofnandi hjálparsamtakanna Solaris, er afar ósátt við úrskurð aganefndar KSÍ í máli Atla Steinars Ingasonar, leikmanns Skallagríms í knattspyrnu. Atli Steinn var á dögunum dæmdur í fimm leikja keppnisbann fyrir að hafa viðhaft rasísk ummæli um mótherja sinn í leik Skallgríms gegn Berserkjum á dögunum. Þetta er í annað sinn sem að Atli Steinn fær keppnisbann fyrir slíka hegðun og telur Sema Erla að aganefndin hafi misst af tækifæri til þess að setja sterkt fordæmi fyrir slík mál í framtíðinni.
Hún segir að nokkrar ástæður séu fyrir því að niðurstaðan valdi henni vonbrigðum.
„Í fyrsta lagi, þá er um minnstu mögulegu refsingu að ræða samkvæmt reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál (grein 16.1) fyrir mismunun. Leikmenn sem gerast einu sinni sekir um rasisma eru yfirleitt dæmdir í slíkt bann. Atli Steinar hefur hins vegar áður verið dæmdur fyrir rasisma á vellinum af aganefnd KSÍ. Árið 2015 var hann sem áhorfandi dæmdur í tveggja ára vallarbann fyrir rasisma í garð dómara (grein 16.5). Það virðist ekki hafa verið tekið tillit til þess í niðurstöðu aganefndarinnar nú (það er hvergi minnst á fyrri dóm í úrskurðinum) sem er með öllu óskiljanlegt og í raun alveg fráleitt. Ítrekuð brot hljóta að þýða þyngri refsingu," segir Sema.
Bætir hún við að hennar mati sé að aganefndin hafi gert lítið úr vanda sem augljóslega sé til staðar.
„Í öðru lagi, þá gaf Atli Steinar frá sér yfirlýsingu nokkrum dögum eftir leikinn þar sem hann baðst afsökunar „á óviðeigandi ummælum“ sem þó áttu „alls ekki að vera rasísk að neinu leyti.“ Ummælin skrifar hann á keppnisskap sitt og hita leiksins sem eru elstu og útþynntustu afsakanirnar fyrir rasisma. Atli Steinar „viðurkennir síðan mistök sín (sem er ekki skýrt hver eru þar sem þau eru ekki rasismi samkvæmt honum) og ætlar að bæta ráð sitt.“
Hún segir ljóst að út frá þessari yfirlýsingu Atla Steinars hefði aganefnd KSÍ átt að vera ljóst að hann hafi ekki gengist við rasískri hegðun sinni með nokkrum hætti, hann hafi ekki beðist afsökunar á rasisma sínum og ekki séð að sér. „Atli Steinar sér rasisma sinn ekki sem vandamál. Hann telur sig ekki vera rasista þrátt fyrir að hafa núna verið dæmdur tvisvar í bann fyrir rasisma og eiga nokkrar slíkar twitter færslur. Það er mjög alvarlegt því fyrsta skrefið í því að breyta hugarfari og hegðun sinni og fá aðstoð með það er að viðurkenna vandann og horfast í augu við hann. Það virðist Atli ekki vera tilbúinn til þess að gera og KSÍ hefði að sjálfsögðu átt að líta til þess í úrskurði sínum.“
Í þriðja lagi ítrekar Sema Erla að niðurstaða aganefndarinnar séu mikil vonbrigði því hún geri lítið úr vandanum sem rasismi í fótbolta er og dregur úr baráttu þeirra sem vilja losa íþróttina við slíkt samfélagsmein.
„Ég elska fótbolta. Fótbolti er frábær íþrótt sem getur sameinað fólk, hópa og þjóðir. Fótbolti getur verið sameiningartákn, hann getur verið forvörn gegn áhættuhegðun og búið til fyrirmyndir og leiðtoga. Fótbolti getur líka verið vettvangur ofbeldis eins og rasisma og annarra öfga.“
Hún kallar eftir því að knattspyrnusambandið taki skýra afstöðu gegn slíku ofbeldi. Það sé ekki gert með því að reyna að horfa fram hjá vandanum og né hunsa hann. Að hennar mati sé það gert með zero tolerance gegn rasisma og öðru ofbeldi þó það geti þýtt erfiðar og óþægilegar ákvarðanir. .
„Jákvæðu fréttirnar eru að knattspyrnudeild Skallagríms hefur ákveðið að ganga lengra en aganefnd KSÍ og hefur greint frá því að Atli Steinar muni ekki leika meira með liðinu á þessu tímabili (og vonandi ekki í náinni framtíð). Það er jákvætt því einstaklingar með rasískt hugarfar eiga ekkert erindi á íþróttavöllinn. Það er ekkert persónulegt. Það snýst um gildi og viðmið samfélagsins. Ég skora á Skallagrím að aðstoða Atla Steinar með að verða sér úti um viðeigandi fræðslu og upplýsingar og aðra meðferðarþjónustu sem hann þarf á að halda til þess að komast rasisma sinn, það er að segja ef hann vill. Það er sorglegt að sjá ungan mann búa yfir svo miklum ranghugmyndum, fordómum og hatri eins og hann hefur nú ítrekað sýnt af sér. Megi honum farnast sem allra best,“ segir Sema.