Sema Erla Serdar, stjórnmála- og Evrópufræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum, birtir í dag hræðileg skilaboð sem henni bárust í einkaskilaboðum og segir áreiti sem þetta óþolandi.
Hún segir að birting skilaboða sem þessara sé eina leið hennar til að skila skömminni og að hún muni kæra þá sem beiti hana ofbeldi.
Í færslunni sem sjá má í heild sinni hérna fyrir neðan segir Sema það ógeðslegt hvernig fullorðið fólk leyfir sér endalaust að ráðast inn í líf hennar til þess að áreita hana og níðast á henni og uppruna hennar í þeim tilgangi að niðurlægja hana, brjóta hana niður og bara ganga frá henni.
Hún hafi í áratug þurft að sitja undir fordómum, menningarlegum rasisma, íslamófóbíu, hatursorðræðu, hótunum og ofbeldi ásamt því að fjölskyldu hennar sé hótað.
Ástæðan sé sú að hún sé kona af blönduðum uppruna sem vill að við tökum á móti fólki á flótta með mannúð og mannréttindi að leiðarljósi. Það er glæpurinn sem réttlætir ofbeldi gagnvart mér.
Færsluna í heild sinni á sjá hér fyrir neðan.