Selt magn dróst saman um 4,0%

Hagnaður N1 á síðasta ári nam 2,1 milljarði króna, sem er 39% minni hagnaður en árið á undan. Þegar kostnaður við kaup á Festi er undanskilinn var rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, 3,6 milljarðar króna og stóð nánast í stað á milli ára. Selt magn af bensíni og gasolíu dróst saman um 4,0% á milli ára en velta annarra vara jókst um 3,0%. Framlegð af vörusölu jókst um 1,2% og nam 11,3 milljörðum króna á síðasta ári. EBITDA nam 31,2% af framlegð síðasta árs. Vaxtaberandi skuldir námu 8 milljörðum króna og minnkuðu um 991 milljón króna. Eigið fé var 13,8 milljarðar í lok síðasta árs og eiginfjárhlutfall var 49,9%. Að gefnum tilteknum skilyrðum um fjölgun ferðamanna og efnahagsþróun, þá spáir fyrirtækið að EBITDA muni verða á bilinu 3,5 til 3,7 milljarðar króna á þessu ári að undanskildum kostnaði við kaup á Festi. Gangi þau viðskipti eftir gagnvart samkeppnisyfirvöldum er gert ráð fyrir að þeim ljúki í lok annars ársfjórðungs. Stjórn N1 leggur til við aðalfund að ekki verði greiddur arður vegna ársins 2017.