Málverk eftir baráttumanninn Hauk Hilmarsson hafa verið sett á uppboð í fjáröflun við gerð heimildarmyndar um ævi og störf hans. Fjáröflunin fer fram á Karolinafund og fyrir henni stendur kvikmyndagerðarmaðurinn Jón Grétar Sigríðarson.
Jón Grétar hefur unnið að gerð heimildarmyndar um Hauk frá árinu 2014 og var þá ætlunin að fylgja ævi og störfum hans eftir næstu áratugina. Í viðtali við Kjarnann í janúar síðastliðinn sagðist Jón Grétar hafa tekið þá ákvörðun að hópfjármagna myndina til þess að þurfa ekki að sæta ritskoðun við gerð hennar, enda komi efni hennar til með að vera umdeilt.
Eins og flestum er kunnt er Haukur talinn hafa fallið í valinn í Sýrlandi árið 2018 þegar tyrkneski herinn gerði innrás í héraðið Afrin. Haukur var þar staddur í slagtogi með kúrdísku Þjóðvarnarsveitunum YPG og barðist með þeim í sýrlensku borgarastyrjöldinni.
Til sölu hafa verið sett þrjú málverk eftir Hauk; „Morgunblaðið,“ „Undirskrift“ og „Fyrirsjáanlegt.“ Með málverkunum fylgja jafnframt myndir af Hauki við vinnslu verkanna.