Selfoss miðbær allra landsmanna

Fjöldi fólks kom saman í Tryggvaskála á Selfossi síðdegis í dag þar sem opnuð var sýning á teikningum og drögum að deiliskipulagi fyrir nýjan miðbæ austan hringtorgsins við brúarsporð Ölfusár sem á að rísa á svæðinu á næstu þremur árum. Eins og greint var frá á hringbraut.is fyrr í dag er ætlunin að nýi miðbærinn beri svip gamla tímans í bænum með lágreistum húsum, að mestu úr bárujárni að ytra byrði, en þar verða m.a. reknar verslanir, kaffihús og listaskálar.


Að sögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, sem var einn  frummælenda við opnun sýngarinnar, munu þessi metnaðarfullu áform ekki aðeins verða lyftistöng fyrir Selfyssinga og Árborgarbúa í fyrirsjáanlegri framtíð heldur og fyrir landsmenn alla, slíkt verði aðdráttarafl þessa nýja kjarna sem muni minna fólk um allt land á gamla tíma. "Það mun enginn geta farið hér hjá án þess að koma við í nýja miðbænum," sagði hann í samtali við hringbraut.is. Hann bar lofsorð á hugmyndasmiði framtaksins, þá Guðjón Arngrímsson og Leó Árnason sem báðir eru fæddir og uppaldir Selfyssingar og flutti góðar kveðjur frá ríkisstjórninni allri á þessum merkisdegi í sögu Selfoss og Árborgar.


Sýning á teikningum og skipulagi nýja miðbæjarins verður opin almenningi á morgun, laugardag, í Tryggvaskála.