Metnaðarfullar hugmyndir eru uppi um að reisa nýjan miðbæ í anda gamla tímans á Selfossi austan við hringtorgið við brúarsporð Ölfusár. Bæjarráð Árborgar hefur þegar samþykkt fyrir sitt leyti vilyrði fyrir úthlutun þessa miðbæjarsvæðis á Selfossi til Sigtúns þróunarfélags ehf um uppbyggingu alhliða miðbæjarstarfsemi og ferðaþjónustu í húsum með sögulega fyrirmynd.
Miðað er við að byggð í miðbænum verði lágreist en þétt, í samræmi við þá húsagerð sem er að finna í götum kringum miðbæjarsvæðið. Öll húsin sem reist verða, væntanlega 25 hús, munu eiga sér sögulega fyrirmynd – eru, eins og segir í kynningarblaði Sigtúns, horfin hús með sögu sem er táknræn fyrir tiltekið tímabil, atvinnuhætti, listir, mat og menningu í Árborg, á Suðurlandi og jafnvel víðar.
Miðbæjarsvæðið, sem blasir við þegar komið er yfir Ölfusárbrú inn í bæinn, hefur staðið autt um árabil. Hugmyndir Sigtúns miða við að skapa heildstætt svipmót líflegs miðbæjarkjarna þar sem alhliða iðja og afþreying geri Selfoss fært að taka með kraftmeiri hætti en áður þátt í ferðaþjónustunni í landinu.
Mörg hundruð þúsunda ferðamanna eiga árlega leið um bæinn án þess að staldra þar við. Að baki þróunarverkefninu býr sú trú að með táknrænum og aðlaðandi miðbæ geti Selfoss tekið sér stöðu sem mikilvægur viðkomustaður ferðamanna á Íslandi og þar verði jafnframt tækifæri fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi og góða kosti til búsetu í miðbænum.
Hópur áhugamanna stendur að baki Sigtúns þróunarfélags ehf., en forsvarsmenn hópsins eru Selfyssingarnir Leó Árnason og Guðjón Arngrímsson. Hönnun annast Batteríið Arktektar og Snorri Freyr Hilmarsson, hönnuður og formaður Torfuasamtakanna. Verkfræðiráðgjöf og verkefnisstjórn er í höndum VSÓ Ráðgjafar.