Athafnamaðurinn Ólafur Laufdal er gestur Sigurðar K. Kolbeinssonar í þættinum Atvinnulífið í kvöld, en þar rifjar hann um gamla tímann í næturlífinu í Reykjavík. Óhætt er að fullyrða að enginn skemmtistaður á Íslandi hafi nokkurn tíma verið jafn vinsæll og Hollywood sem opnaður var 2. mars 1978. Á gósentíma skemmtistaðarins seldi Ólafur allt að 1700 aðgöngumiða á kvöldi, en staðurinn hafði þó aðeins leyfi fyrir tæplega 700 gesti hverju sinni. Svo mikil var aðsóknin að gestir sem vildu tryggja sér aðgang urðu að mæta um kl. 22.00 til að vera öryggir inn. Langar biðraðir mynduðust í Ármúlanum og þunnklæddar diskódrottningar máttu oft og tíðum láta sig hafa það að bíða úti í frosti og kulda tímunum saman. Allir vildu komast inn og allir voru stjörnur í Hollywood eins og auglýst var í þá daga.
Horfðu á klippu úr þættinum sem verður í kvöld hér:
Þátturinn Atvinnulífið er frumsýndur kl. 21.00 á þriðjudagskvöldum á Hringbraut, en þar er farið í heimsókn til þekktra fyrirtækja og saga þeirra sögð.
Seldi oft 1700 miða á 700 manna stað
Fleiri fréttir
Nýjast