Sektar lands­bankann um hálfa milljón á dag

Fjármálaeftirlitið hefur frá því um miðjan síðasta mánuð sektað Landsbankann um hálfa milljón króna á dag til þess að knýja á um að bankinn selji 22 prósenta hlut sinn í Eyri Invest, stærsta einstaka hluthafa Marels. Bankinn hefur haft hlutinn til sölu með opinberum hætti frá því í maí árið 2016 án þess að viðunandi tilboð, að hans mati, hafi borist.

Frá því að Fjármálaeftirlitið hóf að leggja dagsektir á Landsbankann þann 15. september síðastliðinn hafa sektirnar numið samanlagt 23 milljónum króna. Í svari bankans við fyrirspurn Markaðarins segir að bankinn hafi lengi reynt að selja bréfin í Eyri Invest og ákvörðun Fjármálaeftirlitsins geri það enn brýnna en áður.

„Bankinn er að meta möguleg viðbrögð í framhaldi af ákvörðun Fjármálaeftirlitsins,“ segir jafnframt í svarinu.

Eyrir Invest fer með 25,9 prósenta hlut í Marel, langsamlega stærsta félaginu í Kauphöllinni, og er óbeinn eignarhlutur Landsbankans í hátæknifyrirtækinu metinn á rúmlega 16 milljarða króna. Til viðbótar á fjárfestingafélagið 43,4 prósenta hlut í Eyri Sprotum, sem fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum, og þriðjungshlut í Efni Media, sem selur vörur og þjónustu í gegnum netið og samfélagsmiðla.