Stjórn Veiðifélags Mývatns hefur sent hringbraut.is athugasemd vegna fréttar sem Hringbraut birti í gær upp úr fundargerð aðalfundar félagsins.
Í athugasemd mývetnskra veiðibænda segir:
“Vegna fréttar sem birt var úr óstaðfestri og ókláraðri aðalfundargerð Veiðfélags Mývatns á vef Hringbrautar að morgni 9. febrúar vill stjórn Veiðifélagsins koma eftirfarandi á framfæri.
Aðalfundurinn fól stjórn veiðifélagsins að semja við True North vegna kvikmyndaverkefnis sem til stendur að taka, meðal annars, á Mývatni. Allt frá því að erindi barst veiðifélaginu hefur aðkoma True North og fulltrúa þeirra verið til fyrirmyndar. Stjórn veiðifélagsins er ánægð með það samkomulag sem gert hefur verið við True North og því fer fjarri að þeir verði sakaðir um nísku, eins og látið er í ljósi í orðum blaðamanns Hringbrautar. Auk þess telur stjórn veiðifélags Mývatns að True North hafi unnið afar faglega úr verkinu og að einkar vel sé gætt að verndun náttúru og lífríkis. Einnig hefur verkið verið mótað með þeim hætti að ónæði og rask sé nánast ekkert.
Að lokum vill stjórnin árétta ánægju sína með þetta verkefni og þau margvíslegu jákvæðu áhrif sem það hefur á samfélag og efnahagslíf í Mývatnssveit.”
Hringbraut vill vegna athugasemdar Veiðifélagsins taka fram að orð eins og “brandari” kom fyrir í drögum fundargerðarinnar um framlag True North en nokkrir fundarmanna töldu 450.000 króna greiðslu til félagsins vera allt of lága upphæð vegna kvikmyndaatriða á Fast and the Furious 8.
Skal þó áréttað að ekki var tekið fram í frétt gærdagsins að um drög að fundargerð væri að ræða. Fréttin hefði orðið nákvæmari ef þess hefði verið getið.