Efins að katrín landi fimmflokknum

Ritstjórarnir Björgvin G. Sigurðsson hjá Suðra og Páll Ketilsson hjá Víkurfréttum eru báðir álíka efins um að Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna takist að setja saman nýja fimm flokka stjórn á næstu dögum og vikum.

Þeir voru gestir Sigmundar Ernis í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum í gærkvöld, en þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar. Þeir telja allt eins líklegt að þegar í nauðirnar rekur sjái VG hag sínum best borgið í samstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, en ákveðin íhaldsemi einkenni alla þessa flokka og augljós samstarfsflötur þegar kemur að óbreyttu kerfi landbúnaðar og sjávarútvegs, svo og andstöðunnar við Evrópusambandið og þá muni stjórnarskrármálið heldur ekki þvælast fyrir þessum flokkum - og raunar verði skattamálin útfærsluatriði þegar til kastanna komi.

Þeir Björgvin og Páll meta það svo að umbótaöflin innan Bjartrar framtíðar og Viðreisnar muni varla eða ekki getað gefið mikinn afslátt þegar kemur að lagfæringar á landbúnaðar- og sjávarútvegskerfinu og þá muni skattaáherslur VG reynast Viðreisn mjög erfiðar.

Að lokum muni geta farið svo að hugleiðingar nýs forseta Íslands um utanþingsstjórn neyði VG í stjórn með ríkjandi stjórnarflokkum. Og raunar horfi flestir pólitíkusar svo á málin í dag að allt sé betra en örstutt kjörtímabil í ljósi blankheita flokkanna eftir nýafstaðnar kosningar.

Í þættinum var einnig fjallað um gula spjaldið sem Ríkisendurskoðun lyfti á Landsbankann út af ógagnsæju söluferli margra eigna hans á undanförnum árum, en lokað söluferli bankans þar sem litið var framhjá hámarksvirði eignanna hefur mætt vægast sagt mikilli gagnrýni að undanförnu. Og spurt er; er bankastjóra í ríkisbanka sem er að 98% í eigu almennings sætt í starfi?

Loks var rætt um þau stórkostlegu umskipti sem eru að verða í atvinnulífi á Suðurnesjum þar sem 20% atvinnuleysi er að baki við við blasir 500 manna fjölgun íbúa á hverju ári fram til 2040, að minnsta kosti, en hvað mun það þýða fyrir íslenska rússibanahagkerfið, aðra kollsteypu, eða hvað?

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30.