Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands telur að verslunin á Íslandi hafi ekki skilað til almennings þeirri styrkingu á krónunni sem orðið hefur að undanförnu. Undir þetta tekur Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna.
Rætt við er Ólaf Andra og Jóhannes í Morgunblaðinu í dag. Þar segir sá fyrrnefndi að frá áramótum hafi krónan styrkst um 3,4% og ætla mætti í samræmi við það að verðlag á innfluttum matvælum færi lækkandi, einkum og sér í lagi vörur sem keyptar eru inn með evrum: \"Það er því vonbrigði,\" segir hann \" að samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands hafa innfluttar vörur hækkað um 2,3% frá áramótum að meðaltali og ef horft er framhjá tímabundnum áhrifum af sumarútsölum er hækkunin 3,5%.\"
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna segir samtökin hafa séð ástæðu til að birta verðhækkanir hjá birgjum undanfarið. Hann efast um að styrking krónu hafi skilað sér sem skyldi.