Forvígismenn Samgöngustofa hafa sagt upp þrettán manns á skrifstofum sínum sem eru á fjórum stöðum á landinu, Stykkishólmi, Ísafirði, Akureyri og í höfuðstöðvunum í Reykjavík. Ástæðuna má rekja til fjárhagsþrenginga stofnunarinnar sem þarf að fækka starfsfólki svo hún verði innan fjárheimilda þessa árs. Talið er að einhverjar skipulagsbreytingar muni fylgja þessum uppðsögnum, en stofan er tiltölulega ný af nálinni, stofnuð á grunni margra sjálfstæðra stofnuna sem unnu hver á sínu sviði stjórsnsýslu samgöngumála. Með sameiningunni fóru öll opinber mál sem varða flug, siglingar, umferð og öryggisfetirlit með samgöngumannvirkjum og leiðsögu undir einn hatt.
Ekki er talið líklegt að hróflað verði við starfsstöðvum Samgöngustofu úti á landi með þessum breytingum sem líklega bitna harðast á höfuðstöðvunum í Reykjavík.