Segja tilboð sitt það hæsta í sögu sa

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram tilboð um 23,5% hækkun dagvinnulauna á þriggja ára samningstíma í kjaraviðræðum við Starfsgreinasamband Íslands. Þau segja þar enga blekkingu á ferðinni eins og framkvæmdastjóri SGS fullyrti í Fréttablaðinu í dag. 


Í tilkynningu frá SA í morgun segir að innifalið í þeirri hækkun sé 8% sérstök hækkun dagvinnulauna, samhliða auknum sveigjanleika vinnutíma og lækkun yfirvinnuálags. Með þeim hætti yrðu grunnlaun hækkuð sérstaklega og vægi dagvinnulauna í heildartekjum myndi aukast. Launakerfin yrðu þannig færð nær því sem tíðkast í nágrannalöndum okkar, þar sem vinnutímareglur eru mun sveigjanlegri en hér tíðkast og yfirvinnugreiðslur eru hverfandi. 


Atvinnurekendur segja að tilboðið feli í sér raunverulegar kjarabætur en samkvæmt því myndi lægsti taxti aðildarfélaga SGS hækka um 47 þúsund krónur á mánuði á þremur árum. Meðaldagvinnulaun félagsmanna aðildarfélaga SGS myndu hækka úr 260 þúsund krónum á mánuði í 320 þúsund eða um 60 þúsund krónur og meðaldagvinnulaun fiskvinnslufólks úr 290 þúsund krónum á mánuði í 360 þúsund eða um 70 þúsund krónur. 


Þá segjast forkólfar SA einnig bjóða sérstaka hækkun lágmarkstekjutryggingar fyrir fulla dagvinnu sem næði 280 þúsundum króna á mánuði í lok samningstímans. Þeir segja að ástæða sé að taka það fram sérstaklega að tilboð SA til SGS sé hærra en samtökin hafa nokkru sinni lagt fram frá stofnun þeirra. Jafnframt sé tilboðið hærra en allar samningsniðurstöður í kjarasamningum frá því á tímum óðaverðbólgunnar á níunda áratugnum. Ef tilboði SA yrði tekið og það tækist að viðhalda efnahagslegum stöðugleika, yrðu það mestu kaupmáttarsamningar síðustu áratuga, segir í tilkynningunni.