Telja stöðu borgarinnar vera sláandi

„Þetta eru sláandi tölur sem segja okkur að það er eitthvað mikið að í rekstri Reykjavíkurborgar. Tapið á aðalsjóði Reykjavíkurborgar er jafnhá tala og heildartekjur Mosfellsbæjar sem er í hópi stærstu sveitarfélaga landsins,“ sagði Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í ræðu sinni í borgarstjórn í dag.


Í tilkynningu frá borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna segir að þeir líti málið mjög alvarlegum augum: "Aðalsjóður Reykjavíkurborgar sem samanstendur af grunnþjónustu borgarinnar er rekinn með 7,1 milljarða króna tapi. Tapið er bætt upp með jákvæðri afkomu Eignasjóðs og Bílastæðasjóðs þannig að niðurstaða A-hlutans verður 2,8 milljarðar króna í tap. Ef viðhald væri ekki vanrækt á götum og skólahúsnæði værum við að sjá enn meiri hallarekstur á A-hluta borgarinnar. Skýrsla Fjármálaskrifstofu borgarinnar segir að rekstrarniðurstaða A-hluta hefur vernsað talsvert milli ára og segir hún í skýrslu sinni að mikilvægt sé að bregðast við þessum aðstæðum. Í ljósi þess hversu mikils hlutleysis er almennt gætt í orðavali Fjármálaskrifstofu verður að líta svo á að þarna sé um þung viðvörunarorð til meirihlutans að ræða."


Sjálfstæðismenn lögðu fram bókun vegna fjárshags borgarinnar á fundi stjórnenda hennar í dag, en þar segir: "Þegar rekstur A-hluta er skoðaður frá árinu 2002 má sjá að í tíð vinstri meirihluta 2002-2006 er taprekstur öll árin. Árin 2007-2010 er Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta og þá er jákvæð afkoma öll árin. Vinstri meirihluti tekur svo við vorið 2010 og eftir það er aftur taprekstur á A-hluta að frátöldu árinu 2013 sem verður að segjast að sé undantekningin sem sannar þá reglu að í tíð vinstri meirihluta við stjórn Reykjavíkurborgar er taprekstur á A-hluta. Þannig er það þrátt fyrir að útsvari sé haldið í hæstu löglegu hæðum."