"Virðulegi forseti, var hann að fara til þess að fara á fund? Var hann að fara að tala við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn eða Sameinuðu þjóðirnar eða hvað? Hann var að fara að fá sér köku, virðulegi forseti. Ég verð bara að segja það að mér finnst þetta með algjörum ólíkindum. Ég spyr forseta hvort þetta geti talist til sóma í þinginu?“
Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, á Alþingi í gær. Sigmundur Davíð er sagður hafa yfirgefið þingsalinn á meðan Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, beindi til hans fyrirspurn um vernd afhjúpenda. Nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku í kjölfarið til máls þar sem þeir sökuðu forsætisráðherra um að sýna samþingmönnum sínum óvirðingu. Vefmiðillinn Kjarninn sagði fyrstur frá málinu.
"Virðulegi forseti, við þekkjum auðvitað þennan hæstvirta forsætisráðherra sem verið hefur um skamma hríð að því að sýna hér ítrekað ótrúlega óvirðingu gagnvart samstarfsfólki sínu í þinginu og fyrir það að skorast undan því mánuðum og misserum saman að ræða við þingmenn efni sem þeir óska eftir því að fá að ræða við hæstvirtan forsætisráðherra," sagði Helgi Hjörvar þongflokksformaður Samfylkingarinnar af þessu tilefni og bætti við: "Nú þegar forsætisráðherra fæst til þess að koma og svara fyrirspurn þá getur hann ekki einu sinni séð sóma sinn í því að ljúka umræðunni og hlusta á síðara innleggið frá þeim sem spyr hann,“ sagði Helgi og skoraði á forseta Alþingis að taka þessa lítilsvirðingu forsætisráðherra gagnvart þinginu og gagnvart samstarfsmönnum sínum á Alþingi til greina.