Segja seðlabankann stuðla að verðbólgu

Samtök atvinnulífsins telja þau verulegu gjaldeyriskaup sem Seðlabanki Íslands stundar nú um stundir geti dregið úr virkni peningastefnu bankans, en ef fram fer sem horfir munu kaupin nema allt að 200 milljörðum á þessu ári.

Þessi inngrip Seðlabankans til að milda sveiflur krónunnar eru þó ekki án kostnaðar að mati atvinnurekenda; í reynd sé hér um peningaprentun að ræða því Seðlabankinn sé með þessum ráðum að auka peningamagn í umferð.

\"Seðlabankinn er því í nokkuð undarlegri stöðu,\" skrifa samtökin í tilkynningu sem þau sendu frá sér í dag: \"Annars er hann byrjaður að hækka stýrivexti á ný og boðar frekari vaxtahækkanir á næstu mánuðum, en  um leið eykur hann peningamagn í umferð með inngripum á gjaldeyrismarkaði. Verðlagsáhrif þess að auka peningamagn í umferð eru þau sömu og ef Seðlabankinn lækkar vexti, því slíkt stuðlar að verðbólgu, lækkar virði krónunnar til lengri tíma litið og skapar þrýsting á markaðsvexti til lækkunar. Seðlabankinn er því m.ö.o. að draga úr áhrifum sinna eigin vaxtahækkana með inngripum á gjaldeyrismarkað,\" segir í tilkynningu Samtaka atvinnulífsins í dag.