Íslenskir dýraverndunarsinnar hafa lagt fram kæru á hendur umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, fyrir meint brot á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum vegna tilkynningar um hreindýrakvóta nýhafsins árs.
Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins má veiða 1450 hreindýr á þessu ári, þar af 1061 kú og 389 tarfa. Veiðitími á að vera óbreyttur, frá 1. ágúst, \"sem þýðir, að enn einu sinni á að leyfa dráp á hreindýrakúm frá 2ja mánaða gömlum kálfum þeirra,\" eins og segir í aðfinnslum dýraverndarsinna. \"Í okkar huga er ráðherrann með þessum veiðiheimildum og þessum „hreindýrakvóta“ að margbrjóta og þverbrjóta dýraverndarlög,\" segir þar ennfremur.
Í kærunni er bent á gögn sem verndarsinnar telja taka af öll tvímæli um að ungum kúm eigi að hlífa við dýradrápi af þessu tagi, kálfanna vegna, sem þurfi á mæðrum sínum að halda mun lengur en byssyleyfi ráðuneytisins geri ráð fyrir, en augljóslega ráði hér för \"valdamikill hópur íslenskra veiðimanna, en yfir 3000 manns sækjast í að fá að drepa hreindýr ár hvert, án nokkurs rétts tilefnis eða þarfa, bara til að friðþægja þörf sinni og gleði af því að drepa saklaus og varnarlaus dýr,\" eins og segir í tilskrifi verndarsinnanna sem eins og fyrr segir hafa kært ráðherrann fyrir að leyfa dráp á mjólkandi kúm.