Segja ráðherra hóta skertum rétti

Þingflokkur Samfylkingarinnar sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem tekið er undir kröfur einstakra samtaka launafólks; barátta gegn auknum ójöfnuði í samfélaginu sameini kröfugerð þeirra allra.


Í tilkynningunni segir að bilið á milli þeirra tekjulægstu og tekjuhæstu aukist, misskipting eigna aukist og aðgerðir ríkisstjórninnar ýti enn frekar undir þessa þróun. Lágtekjufólk og meðaltekjufólk beri að fullu kostnaðinn af hruni krónunnar með launum sem séu verulega lægri en í nágrannalöndunum. Stórfyrirtækin njóti hins vegar ávinningsins af gengishruninu en leggi ekkert af mörkum á móti. Öflugustu fyrirtækin og ríkustu einstaklingarnir hafi fengið gríðarlegar skattalækkanir í tíð ríkisstjórnar ríka fólksins, sem velji að nýta ekki auðveld tækifæri til að afla meiri tekna af auðlindum þjóðarinnar.


"Í þessu samhengi bera samtök launafólks eðlilega ekkert traust til ríkisstjórnar sem hefur hleypt samstarfinu við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur í algjört uppnám. Það gefur ekki góð fyrirheit um farsæla niðurstöðu kjarasamninga að fjármálaráðherra sem viðsemjandi geri lítið úr baráttu launafólks, snúi út úr kröfum háskólamanna og hóti skerðingu á verkfallsrétti," segir í tilkynningunni.