Segja neyslu ungmenna á orkudrykkjum með koffíni hafi meira en tvöfaldast á síðustu tveimur árum

Embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands standa fyrir tannverndarviku í næstu viku með þeim skilaboðum til landsmanna um að huga vel að tannheilsunni. Sérstök áhersla verður lögð á orkudrykki þá viku, en neysla ungmenna á orkudrykkjum með koffíni hefur meira en tvöfaldast á síðustu tveimur árum. Mikil og tíð neysla sætra og sykurlausra orkudrykkja getur leyst upp ysta lag glerungsins sem þynnist og eyðist og myndast ekki aftur. Tennurnar verða viðkvæmar fyrir kulda og meiri hætta er á tannskemmdum. Glerungseyðing er vaxandi vandamál hjá börnum og ungmennum á Íslandi.

Orkudrykkir eru oft markaðssettir sem heilsudrykkir en neysla á orkudrykkjum samhliða hreyfingu getur valdið hjartsláttartruflunum og aukið vökvatap líkamans ef þeirra er neytt í kjölfar íþróttaæfinga. Tannlæknafélag Íslands segir að íslenska vatnið sé besti svaladrykkurinn og það sé óhætt að drekka vel af því. Í vatni eru engin örvandi efni og það er því ákjósanlegasti drykkurinn til að viðhalda vökvajafnvægi líkamans. Sýrustig vatns er svipað og munnvatnsins og því eyðir það ekki glerungi tannanna.

Embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands hvetja stjórnendur verslana til að gera viðvörun framleiðanda um hámark daglegrar neyslu betri skil. Einnig er óskað eftir því að ekki verði hvatt til neyslu orkudrykkja með afsláttarkjörum eða á annan hátt í verslunum í ljósi áhrifa þeirra á heilsufar ungs fólk og annarra sem ekki ættu að neyta orkudrykkja. Í Tannverndarviku eru stjórnendur grunn- og framhaldsskóla hvattir til að leggja áherslu á fræðslu, umfjöllun og viðburði sem tengjast súrum tönnum og fræðsluefni um orkudrykki.