Megrunarkaffi sem inniheldur amfetamínskylt efni og er til sölu hér á landi er nú til skoðunar hjá Matvælastofnun og Lyfjaeftirliti Íslands. Frá þessu greinir Morgunblaðið. Í kaffinu er virka efnið phenylethylamine en efnið er á bannlista WADA, Alþjóðalyfjaeftirlitsins.
Birgir Sverrisson framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlitsins kveðst í samtali við Mbl hafa fengið ótal ábendingar um megrunarkaffið sem inniheldur phenylethylamine og er amfetamínskylt og hefur því örvandi áhrif. Segir Birgir að ástæðan fyrir því að hið örvandi efni sé á bannlista sé vegna þess að það geti verið hættulegt heilsu fólks. Birgir segir:
„Þessi vara er skólabókardæmi um eitthvað sem varað er við. Vörur sem eiga að grenna fólk eða auka vöðvamassa þess, þær ber að varast. Það er oft eitthvað óvenjulegt í þessu.“
Áhrifavaldar og aðrir umboðsaðilar selja megrunarkaffi á samfélagsmiðlum, s.s. Instagram og Facebook, og eru einnig dæmi um sölusíður þar sem megrunarkaffi er selt.
Fjöldi Facebook-síðna er með söluumboð fyrir megrunarkaffi. Bendir Morgunblaðið á að margar þeirra voru stofnaðar um svipað leyti, fyrr í júlímánuði þessa árs.
Þar eru dæmi um að birtar séu árangurssögur af þyngdarmissi eftir nokkurra vikna neyslu kaffisins. Á síðu sem selur megrunarkaffi segir að kaffið hafi „jákvæð áhrif á heilastarfsemina, jafnar blóðsykur og geðslag, eykur fókus, skýrleika, einbeitingu og bætir minnið“.
Þá er Mast að skoða vöruna sem gæti farið fram á að hún yrði tekin úr umferð.