Segja lögverndun verja sérhagsmuni

\"Lögverndun er ávallt komið á í nafni neytendaverndar en í reynd ber hún mörg einkenni sérhagsmunagæslu. Í krafti lögverndunar geta þeir sem fyrir sitja hækkað verð til viðskiptavina sinna og hindrað aðgengi annarra að sömu störfum.\"

Þetta kemur fram á vef Viðskiptaráðs Íslands í dag þar sem fjallað er um samkeppnishindranir, en í þessu tilskrifi ráðsins segir að reynslan sýni að lögverndun atvinnugreina hafi ekki leitt til bættrar þjónustu. Forkólfar ráðsins spyrja hvort lögverndun á íslenskum vinnumarkaði sé atvinnulífinu banvænn biti: \"Flestir vita að hérlendis þarf leyfi frá stjórnvöldum til að starfa við lækningar eða lögmennsku. Færri vita að hið sama á við um kökugerð, skrúðgarðyrkju og klæðskerasníði. Lögvernduðum atvinnugreinum hefur fjölgað verulega og í dag þarf leyfi stjórnvalda til að sinna 173 tegundum starfa á Íslandi.\"

Í umfjöllun ráðsins um lögverndun atvinnugreina segir að Ísledningar eigi Norðurlandamet í þessu efni, en hér á landi sé bæði víðtækari, meira íþyngjandi og yfirgripsmeiri en í grannríkjunum. Lögverndunin hér á landi nái til um 60 þúsund starfa sem jafngildi um þriðjungi allra starfa í landinu, samkvæmt áætlun Viðskiptaráðs. Þá er og bent á að lögverndun hækki verð til viðskiptavina og auki tekjur þeirra sem fyrir eru í stéttinni en hafi engin áhrif á gæði þeirrar þjónustu sem er veitt.

Tekið er fram að til stjórnvalda til að endurskoða lögverndun iðnaðarstarfa árið 2012 hafi runnið út í sandinn í kjölfar samráðsferlis við fagfélög: \"Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að fylgja erlendum fordæmum og einskorða lögverndun við þær greinar þar sem hún skilar sannarlega ávinningi. Afnám lögverndunar í fjölmörgum atvinnugreinum myndi auka atvinnufrelsi, styðja við markmið stjórnvalda um aukna framleiðni, ýta undir nýsköpun og draga úr kostnaði fyrir bæði neytendur og fyrirtæki,\" segir í þessari tilkynningu Viðskiptaráðs Íslands.