Segja launahækkanir þingmanna vera vond skilaboð inn í aðstæður þjóðfélagsins

Formaður Samfylkingarinnar og þingmaður flokksins segja fyrirhugaða hækkun á launum þingmanna ekki góða hugmynd á þessum tímum. Hún grafi undan trausti á störfum þingsins og séu vond skilaboð til almennings.

Logi Einarsson formaður flokksins fjallaði um málið á Facebook í gær: „Þessar hækkanir eru fullkomlega óþarfar og beinlínis vond skilaboð inn í aðstæður dagsins; til allra þeirra sem standa í miðjum storminum með óleysta samninga en ekki síst þeirra sem sæta nú kjaraskerðingu og búa við ýmis óþægindi vegna ástandsins.

Þessa afstöðu þingflokksins hef ég áður kynnt forsætisráðherra og ítreka nú. Forystumönnum stjórnarflokkanna ætti því að vera full ljós afstaða Samfylkingarinnar,“ sagði hann.

Flokksbróðir hans, Guðmundur Andri Thorsson, skrifaði einnig færslu á Facebook í gær og sagði að ríkisstjórnin ætti að leita leiða til að sleppa hækkuninni:

„Laun þingmanna voru ekki hækkuð 2018 eins og hefði annars gerst eftir að þessar ákvarðanir voru teknar úr höndum kjararáðs heldur var þeirri hækkun slegið á frest til júlí 2019 – og svo aftur slegið á frest til janúar 2020. Vegna mistaka við útreikninga kom hún hins vegar ekki til framkvæmda þá og því er þessi hækkun nú – akkúrat núna. Meira klúðrið. Það er nánast útilokað að finna verr tímasetta hækkun launa hjá þingmönnum. Hún grefur undan trausti á störfum Alþingis, sem má illa við slíku, grefur undan samkennd og samhug og ríkisstjórnin hefði átt – og ætti – að leita allra leiða til að sleppa henni.“